Netættleiðing

UppboðÞað má ættleiða mig í gegnum netuppboð hér á blogginu. Vinsamlegast setjið tilboðin inn á athugasemdir.

Ég er afbragðs námsmaður í spennandi og gefandi námi. Sá sem ættleiðir mig fær innsýn í mikilvæg gildi og nýjar leiðir í lífinu. Mér fylgir heil fjölskylda í ofanálag. Sá fjárfestir sem ættleiðir mig fær því barnabörn án nokkurrar fyrirhafnar. Maðurinn minn er stórgóður félagsskapur og kann eitt og annað fyrir sér. Hann kann líka að elda svo það er hægt að koma til hans í mat á meðan ég er í námi erlendis.

Ekki væri verra ef sá sem ættleiðir mig væri í aðstöðu til að láta útistandandi námslán mín gufa upp að námi loknu. Það kæmi mér einnig vel að fá endurgjaldslaus afnot af einkaþotu á meðan á námi stendur svo ég geti farið heim um helgi. Til að ylja þeim hinum sama um grunnlægar hjartarætur fær hann svo sent innrammað útskriftarskírteini mitt sem mun sóma sér vel yfir arni í hvaða glæsivillu sem er.

Það á móti mun ég og afkomendur mínir í tíunda lið greiða skuldir fjárfestisins og hans góðkunninga um heim allan af einskæru þakklæti fyrir athyglina. 


mbl.is Bjóða fjárfestum að ættleiða stúdenta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú fara tilboðin áreiðanlega að hrynja inn.

Snorri Halldórsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 08:32

2 identicon

...ef ég væri rík (ur)...

ragnheiður sverrisdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband