Láttu þér ekki verða kalt

InnsetningargönguförÉg ólst upp við umvöndunina, "Láttu þér ekki verða kalt". Ég hafði þær áhyggjur einar af klæðaburði nýju forsetafrúarinnar að henni yrði ekki nógu hlýtt í þessum sparifötum. Maðurinn hennar fékk þó að hafa trefil. Grínlaust, þá var úlpuveður með húfu og vettlingum hér í DíSí í gær. Hún hefði verið fullsæmd að dressi frá 66°N, forsetafrúin. Ég stend við það. Þið sjáið bara útganginn á mér á myndunum. Mér veitti ekkert af gammósíum, síðbuxum, fóðruðum vindbuxum, tvennum sokkum, peysu, lopapeysu, herðaskjóli, trefli, húfu og vindheldum vettlingum - enda kannski ekki á leið í Hvíta húsið. Samt er ég komin með hósta. Frú Obama er sennilega lögst í rúmið.
mbl.is Klæðnaður Michelle Obama umdeildur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband