5.6.2008 | 22:28
Jekyll
Það hefur ekkert sjónvarpsefni náð að grípa mig svona á fullorðinsárum eins og þættirnir um Jekyll á Skjá einum. Spennan er yfirþyrmandi, leikur James Nesbitt er magnaður og fléttan lætur ekki of mikið uppi. Þegar þættinum lauk í kvöld greip ég um eyrun, lokaði augunum, sönglaði "nei, nei, nei, nei, nei" og staulaðist fram á gang á meðan Skjár einn gerði aulalega tilraun til að sýna brot úr næsta þætti, lokaþættinum. Nei, takk, mig langar ekki í konfektmola sem er búið að bíta í.
Ég er vant við látin fimmtudagskvöldið 12. júní frá klukkan 21 til 22. Vinsamlegast skiljið eftir skilaboð í talhólfinu.
Athugasemdir
Svo sammála þér, magnaðir þættir og þeir of viljugir að sýna brotin úr næstu þáttum. Segja segja oft meira en þeir eiga.
Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, 5.6.2008 kl. 22:35
Hef ekki séð þessa þætti.....hefði sennilega átt að sjá þá....er sennilega orðin of sein núna elska svona spennuþætti...en gleymi bara alltaf að horfa á þá
Kveðja úr guðfræðideildinni...
Þórey Dögg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 23:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.