26.11.2014 | 16:53
Í landi Magyára
Nú upphefst ritun ferðaannáls að nýju þar sem undirrituð hefur langt land undir fót og komið sér fyrir undir súð á slóðum Atla Húnakonungs. Tilefnið er fæðing fyrsta barnabarnsins sem bar til í Ungverjalandi í liðinni viku. Hingað kom ég síðasta sunnudag, 23. nóvember og hitti mína elskulegu sonardóttur í fyrsta sinn. Hér eftir verður hún kölluð Eva í þessum skrifum sem eru upphafsstafir hennar. Okkur kom prýðilega saman sem veit á gott því á ævintýrum okkar mun enginn endir verða. Hún kom svo heim af sjúkrahúsinu með móður sinni daginn eftir. Það er merkisviðburður á ævinni, að koma heim í fyrsta sinn.
Athugasemdir
Hæ stelpur, stór og lítil. Þið takið ykkur vel út. Knús og knús.
ragnheiður sverrisdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2014 kl. 16:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.