Syndandi sæl og glöð

SundkonaÉg lét margra ára draum rætast og byrjaði á sundnámskeiði í dag. Þetta er stórsniðugt fyrirkomulag í Sundhöllinni í Reykjavík í hádeginu þegar kennslulaugin er oftast tóm svo það eru ekki aðrar gusur en frá okkur sem njótum einstaklingsbundinnar tilsagnar sundkennarans. Í dag átti ég að einbeita mér að því að anda út um nefið í kafi, þjálfa rennsli á milli sundtaka í bringusundi og hafa vit á því að stinga hausnum upp úr kafi á réttu augnabliki til að draga andann. Þetta tókst með þeim ágætum að mér fór eitthvað fram í tímanum. Planið er að fara nokkrum sinnum í sund fram að næsta tíma og æfa mig áfram sjálf.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband