Heima um jólin

Það er búið að standa til síðan í maí að ég færi heim með flugi í dag. Svo gerði hér heljarinnar snjóstorm og flug féll niður í tvo daga um helgina. Ég sá mér ekki annað óvænna en að breyta báðum flugmiðunum og fljúga heim á miðvikudaginn. Biðraðir á flugvöllunum hafa verið langar og hægfara svo ég vildi ekki eiga á hættu að komast ekki um borð vegna þess að ég fengi ekki afgreiðslu.

Hér verður ekkert hugsað um kjólinn fyrir jólin heldur bara að vera heima um jólin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér varð einmitt hugsað til heimferðar þinnar þegar ég hlustaði á fréttir af snjókomu þarna vestra. Góða ferð heim!

Hellen Sigurbjörg Helgadóttir (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband