3.10.2008 | 03:27
Námsskráin III
Þá er komið að þriðja námskeiðinu sem ég segi frá hér á blogginu. Þetta er vinnustofa með staðarlistamanni, kallað "Arts practicum". Þessi tiltekna vinnustofa heitir "Body Psalms" og er undir handleiðslu Tim Holmes, höggmyndasmiðs og kvikmyndagerðarmanns. Hann er annar tveggja staðarlistamanna skólans þetta misserið.
Viðfangsefni þessa námskeiðs tengist nýjustu verkum hans, stuttmyndum í syrpunni "Body Psalms" sem snýst um endurhelgun mannslíkamans sem tærustu tjáningu guðs á veru sinni andspænis þeirri kynferðislegum markaðsvæðingu líkamans sem neysluvöru. Holmes skrautritar ritningavers á líkama dansarar og myndar svo hreyfingar þeirra. Það er ekki hægt að lýsa þessu nánar heldur er best að lesandinn líti á sýnishorn. Það kemur hér neðst í færslunni svo myndin hér til vinstri af einu verka hans lendi ekki í klessu við myndbandið.
Við erum tíu sem sitjum þetta námskeið og í tímum höfum við rætt reynsluna af því að lifa í líkama og unnið úr því bæði hvert um sig og í sameiningu að gefa þessum hugsunum okkar einhvers konar skapandi form. Í gærkvöldi fluttum við svo afraksturinn inni í kór kapellunar sem við breyttum í japanskan garð og gáfum verkum okkar umgjörð í hefðbundinni, japanskri tedrykkju athöfn. Mitt framlag er textílskúlptúr sem ég mun vinna að áfram og kynnti í gær með vinnuteikningu og frásögn af innihaldi verksins. Ég verð áfram í bréfasambandi við leiðbeinandann á meðan ég lýk verkinu.
Hér eru nokkrar myndir frá umbreytingargjörningi okkar í gærkvöldi, japönsku tedrykkjunni í kirkjunni:
Í kvöld sótti ég svo móttöku til heiðurs listamanninum á heimili velunnara hans inni í borginni. Þar voru margir af skúlptúrum hans til sýnis og það var alveg einstakt að fá að sjá þá framyfir það að skoða þá á vefsíðu. Mörg verkanna tengjast friðarboðskap og hefur Holmes m.a. gert verðlaunagrip fyrir Friðarverðlaun kvenna frá Sameinuðu þjóðunum.
Hér koma tvö myndskeið úr verkum Holmes og hið þriðja er nokkuð eldra viðtal við hann í vinnustofu sinni um höggmyndir hans:
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.