Sitt af hvoru tagi.

Þessi færsla verður bland í poka.

Sunnudaginn síðasta ákvað ég að lesa svolítið utandyra en hefndist rækilega fyrir það. Næsta morgun vaknaði ég útsteypt í rauðum flekkjum sem mig klæjaði mikið í og sveið undan. Ganga þurfti úr skugga um að ég hefði ekki lent í ásókn rekkjumaura og því herbergið mitt skoðað í tvígang, í seinna skiptið af meindýraeyði sem ákvað að eitra í glugganum mínum til að fyrirbyggja ásókn moskíflugna. Í næstu viku verður svo þrifið upp úr gluggafalsinu (og er ég hæstánægð með það). Í kjölfarið ætla ég að biðja um að það verði yfirfarið svo ég hætti að fá fýlupöddurnar inn.

En það þurfti meira til með útbrotin á mér. Ég lagðist í sukk með hydrókortisón sprey en það hafði lítil áhrif. Næsta nótt varð svefnlítil vegna óþæginda. Í gærmorgun stökk ég út í apótek eftir meira spreyji og ofnæmistöflum. Það breytti litlu en ég hef þó trú á að ofnæmistöflurnar hafi farið að segja til sín í nótt. Einnig benti skólafólk mér á annars konar lyf í smyrslformi og tókst mér að fá annað þeirra lánað í gærkvöldi. Það var eins og við manninn mælt, kláðinn dvínaði. Ég fór því aftur í apótekið í morgun og þurfti að hemja mig til að kaupa ekki sterkari sortina, slíka ofurtrú hafði ég á blöndunni. Þess í staði keypti ég að auki enn annað smyrsl sem notað er í verstu tilfellum ofan á hitt. Afleiðingin er sú að ég hef verið nánast ónæm fyrir snertingu í allan dag, svo vel hafa smyrslin minnkað. Roðinn hefur hjaðnað verulega en eftir stendur bólgan undir bitunum. En ég á von á að sofa betur í nótt.

Erna og Ólöf í skólagarðinumInn í þennan sorta kom ljósgeisli frá fögru landi ísa eftir krókaleiðum. Erna, bloggvinkona mín, sem býr í Virginia fylki kom við hjá mér nýbitinni í hádeginu á mánudeginum. Við þekktumst ekki fyrir tíð moggabloggsins og hittumst nú í fyrsta skipti. Það var yndislegt að hitta hana. Ekki einasta er hún ákaflega viðkunnaleg, heldur talar hún líka svo góða íslensku (eins og Stella sagði í orlofinu). Ég á nú bara við að það var svo eindæma stórkostlegt að heyra einhvern tala íslensku hér á milli húsa - eins og ég sé búin að vera hér í hundrað ár. Hún er búin að bjóða mér heim við hentugleika og þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um og taka því. Nú vil ég fara að fá smá svigrúm í skólanum til að komast eitthvað frá.

Það var húllumhæ í skólamessunni í gær. 50 ár eru liðin síðan skólinn flutti allt sitt starf inn í borgina í nýtt húsnæði sem hann lét reisa. Húsin eru öll komin til ára sinna og fyrir tveimur árum hófst tuttugu ára áætlun um endurnýjun. Ég er í skólakórnum og fluttum við sálminn "O for a thousand tongues to sing" eftir Charles Wesley og við trommuslátt og slógum algjörlega í gegn. Charles Wesley mælti með að fólki syngi sálminn árlega á degi afturhvarfs síns. Svo var myndarleg afmælisterta eftir hádegismatinn. Skólinn er duglegur að halda upp á tímamót og minnast þeirra í guðsþjónustum. Það er fínt, þá fáum við kannski oftar tertu. Þetta eru náttúrulega engar hnallþórur. Ætli ég skelli ekki í eina í tilefni af 1. des sem forsetinn okkar vill nú fara að endurglæða. Það er rétt að benda á að stúdentar Háskóla Íslands hafa alltaf haldið upp á daginn og er guðsþjónusta þar fastur dagskrárliður og henni útvarpað.

Hér er svo poppaðri útsetning á sálminum: 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Úff, ekki gaman að svona kláðaköstum og húðóþægindum. Vonandi er þér batnað núna - og vonandi sleppurðu framvegis við þessa útlensku óværu.

Laufey B Waage, 2.10.2008 kl. 09:49

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Elsku Ólöf
Takk fyrir falleg skrif í minn garð. Mín var svo sannarleg ánægjan og fallegt af mogganum að kynna okkur. Ömurlegt að þurfa að standa í þessu kláða veseni á meðan þú þarft að einbeita þér að náminu. Farðu varlega með Hydrocortisone. Ég vona að Benadryl smyrslið hafi hjálpað. Ertu að fara heim núna á laugardaginn? Faðmaðu landið frá mér.

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 2.10.2008 kl. 13:05

3 Smámynd: Brynja skordal

Takk fyrir bloggvináttu er reyndar í smá bloggfríi en kem aftur og reyni að fylgjast með bloggvinum hafðu það ljúft

Brynja skordal, 2.10.2008 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband