Í startholunum

EfnisvalHér eru myndir af efnunum sem ég ætla að nota í myndina fyrir sálgæslunámskeiðið sem ég hef áður sagt frá. Þetta er tilraun til sjónrænnar framsetningar guðfræði. Það er ekkert nýtt af nálinni heldur hefur fylgt kristni frá örófi alda. Það sem er heldur sjaldgæfara er vísvitandi viðleitni til þess á guðfræðinámskeiði. Skólinn gefur þennan möguleika þar sem það á við í samráði við prófessorana. Myndin varð þannig til að ég velti því fyrir mér hvernig umfjöllunarefni námskeiðsins myndi líta út ef það væri mynd. Biblían öll er mjög myndræn í framsetningu og þess vegna liggur beint við að teikna þær myndir upp. Hér er ég að búa til nýja táknmynd, nokkuð sem fullt vit er í fyrir mér og þegar ég lagði tillöguna fyrir prófessorinn var hann fljótur að tengja. Svo þarna er minn nagli sem ég hitti á höfuðið. Lokaritgerðin felst þá í að gera hugmyndafræðilega grein fyrir myndmálinu og styðja það guðfræðilegum rökum.

Seinni myndin er svo af einu þeirra sem ég féll algjörlega fyrir í búðinni þegar ég kom mér upp smá byrjunarbirgðum. Það er skelfilegDraumaefniðt að ætla sér að byrja upp á nýtt að kaupa efni til að sauma úr vegna þess að ég kaupi ekki efni í ákveðin verk heldur meira í líkingu við listmálara sem kaupir sér túpur sem hann svo vinnur með til að fá þá tóna sem hann notar. Frekar snúið en lógískt fyrir mér. Ég kaupi aldrei mikið af hverju efni um sig, svo sem fjórðung úr metra. Ég á því ekki mikið af efnum en fjölbreytt úrval. Þar sem ég tók engin efni með mér var ekki um annað að ræða en kaupa inn. Ég setti niður fyrir mér nokkurs konar palléttu til að vinna með og þessi efni koma úr þeim bunka.

Á morgun, mánudag, á ég von á spennandi heimsókn. Segi ekki meira um það. Það er bara spurningin hver verður fyrstur til að blogga um viðburðinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Falleg lita samsetning hjá þér. Verður myndin bútasaumur?

Hlakka til að sjá þig á morgun.

Kveðja, Erna

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 29.9.2008 kl. 02:16

2 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Mér fannst svo gaman að lesa þetta með litavæddu sálgæstlufræðin. Vissulega hefur kirkjan í aldir notast við hina svokölluðu litúrgísku liti einmitt til að kalla fram stemningu og til að túlka ákveðinn boðskap.  Því miður hefur íslenska kirkjan tekið upp á því að vilja taka inn fleiri liti í hinn forna litakanón kirkjunnar (14.öld). Þetta virðist eins og allt sem gert er núorðið lítt hugsað og bara göslast af stað án þess að vita hvert förinni var heitið.  Auðvitað á maður að opna litakanónin, en varfærnislega og með undirbyggðri guðfræðilegri hugsun.

Mér finnst þetta alveg frábært hjá þér Ólöf og vonast til að heyra meira af þessum kúrs/námskeiði.  Þetta er SVAKALEGA spennandi!  Good luck!  Baldur

Baldur Gautur Baldursson, 29.9.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: Heidi Strand

Falleg efni á myndinni.

Þegar ég fer erlendis, er ég bara með hekl og bók með, en til lengra tíma dvalar undirby ég verk hérna heima, hef efninn tilbúin í það og tek með .

Bestu kveðjur

Heidi Strand, 1.10.2008 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband