Allt á hvolfi

bats_upside_down_comprÉg hef verið öfugu megin við sjálfa mig í dag. Ég vakti aðeins frameftir í gærkvöldi til klára að lesa einhverjar restar sem stóðu eftir fyrir daginn í dag. Klukkan eitt eftir miðnætti gafst ég upp og slökkti ljósið án þess að hafa lokið lestrinum og vaknaði svo grútmygluð við vekjaraklukkuna á venjulegum tíma klukkan sjö í morgun. Ég hef því þjáðst af landfastri þotuþreytu í allan dag sem var eins og grá sletta ofan á svartan flóka gærdagsins. Mánudagar eru strembnir því ég er í tímum frá tíu að morgni til sex að kvöldi svo mín er orðin framlág þegar kemur að háttatíma um ellefu leitið. Hér er hváð við því að ég segist fara í rúmið upp úr ellefu. Það er þó ekkert nema eðlilegt við það ef maður ætlar að vakna klukkan sjö.

Skólafélagi minn hefur þulið upp vikuprógrammið hjá sér sem útheimtir svefnskerðingu svo um munar. Hann sefur fjóra og hálfan tíma á nóttu. Hann gerir aldrei bara einn hlut í einu heldur leggur sig fram við fjölvinnslu (multi task). Eini svokallaði frítíminn hans er þegar hann hleypur því honum hefur ekki dottið neitt í hug sem hann getur afgreitt á meðan og sagðist hann hafa mikið velt því fyrir sér hvernig hann gæti nýtt hlaupatímann betur. Mér finnst það gæðanýting á tíma að hlaupa eingöngu. Ég kunni ekki við að benda honum á að hætta að hlaupa úti heldur nota innibretti og þá geti hann aldeilis hamast í öðru á meðan. Bara binda sig vel við brettið svo hann renni ekki fram af.

Annars var dagurinn góður, eins og flestir reyndar. Ég flutti verkefni í tíma í morgun sem fékk góðar viðtökur með beiðni frá prófessornum um að fá að sýna það öðrum prófessor sem innlegg fyrir námskeið sem þeir verða með saman næsta haust. Ætli það gerist nokkuð betra á amerískan mælikvarða? Ég er hæstánægð. Þrautin þyngri er að komast með tærnar á eigin hæla í næsta verkefni á sama námskeiðið. Og þó, ef ég er öfugu megin þá getur það alveg gengið upp að tærnar séu að aftan og hællinn að framan.

Kirkja á hvolfiÉg átti svo fund með prófessornum í hádeginu vegna lokaverkefnisins. Þó gefin séu upp viðmið fyrir úrvinnslu þá eru þau aðeins hugsuð sem hluti af beinagrind að svo miklu leyti sem þau nýtast til þess. Markmiðið er ekki að taka hvert og eitt atriði fyrir heldur aðeins það sem varðar þann flöt sem nemandinn velur sér. Maður hefur því mjög frjálsar hendur með útfærsluna. Mín verður að grunni til vegglistaverk og stutt guðfræðileg úttekt á því. Það var auðsótt mál að fá að vinna á þennan hátt með lokaverkefnið enda hugmyndin mín vel afmörkuð og hugsunin skýr. Af ábendingum hans að skilja sýnist mér ég þurfa að leggjast yfir "process" guðfræði til að búa til tilvísunarramma yfir túlkun mína. Ég bara kinkaði kolli, skrifaði "process theology" og lagðist svo á gúggl þegar heim kom. Ef einhver getur séð aumur á mér þarna út þá eru ábendingar vel þegnar. Ekki væri verra ef viðfangatengslakenningum væri hnýtt saman við þessa guðfræði. Einnig væri vel þegið að fá íslenskt orð yfir "process" guðfræði þó svo ritgerðin verði á ensku. Mér finnst bara ómögulegt að verða fræðimaður sem getur ekki talað íslensku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð Ólöf ! Gaman að heyra að þú ætlir að leggjast í process guðfræði. Mér reyndist einstaklega erfitt að finna almennilegt íslenskt nafn á þessa guðfræðistefnu - svo erfitt reyndar að í kandidatsritgerðinn minni notaði ég enska heitið og skrifaði einfaldlega ,,process" guðfræði. Ég var aðallega að skoða þessa stefnu út frá trúvörn og þjáningu sem gagnast þér væntanlega lítið ! Gangi þér allt í haginn kveðja Arndís

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 17:28

2 Smámynd: SM

til hamingju með verkefnið þitt.

Process guðfræði gæti það ekki verið verðandi guðfræði???

SM, 25.9.2008 kl. 08:48

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Mér dettur nú bara í hug orðið framleiðsla en því er fjarri að ég haldi að það hafi neitt með nákvæmlega hvað þú ert að spá, eða átt að vera spá í.  Helst dettur mér í hug að kennarinn hafi verið að biðja þig að setja fram guðfræðina í verkefninu, raungera guðfræðihugunina. Að skírgera guðfræðina sem þú hugsar þér að starfa eftir, draga línurnar með rauðum penna og setja hana fram í ætilegu formi.  :)

Bestu kveðjur frá haustskrýddri Stokkhólmsborg.  

Baldur Gautur Baldursson, 25.9.2008 kl. 10:46

4 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Arndís, takk fyrir innlitið. Læt þig vita hvað mér dettur í hug. Ég var helst að gæla við það allra einfaldasta, "ferilguðfræði". Gæti það gengið?

Sylvía, verðandi er reyndar nokkuð gott orð. Er svona að máta í munni mér "verðandi guðfræði" og "guðfræði verðandinnar". Það hefur verið sett fram "theology of being" hjá Catherine Keller, það væri þá kannski "guðfræði verunnar" eða "guðfræði verundinnar". Úff, þetta er töff.

Baldur, það er einmitt þetta sem ég er að gera og að eigin frumkvæði - að finna hugmyndinni stað í kenningarlegri umgjörð - svo einhverjir alvarlega þenkjandi guðfræðingar taki mig alvarlega. En þú hefur ekki hugmynd um hversu nákvæmlega þú hittir naglann á höfuðið þegar þú talar um "ætilegt" form. Meira um það seinna. 

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 25.9.2008 kl. 14:03

5 identicon

Já, ferilguðfræði, ég hef séð ,,ýjað að þeirri þýðingu" einhvers staðar á netinu, má vera að Sigurður Árni hafi skrifað um process eitthvað á sínum síðum. Ég man satt best að segja ekki afhverju það var ekki nógu gott í ritgerðina mína. En sjálfri finnst mér það eiginlega einfaldasta og skásta þýðingin. Mikið er annars gaman að því hvað þú ert dugleg að blogga þessa dagana :) Bestu kveðjur úr kreppunni :I) Arndís

Arndís G. Bernhardsdóttir Linn (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband