Fíll í salnum

Janet JacksonFræg að endemum er systir Jackson sem afhjúpaði annað brjóstið á tónleikum í beinni sjónvarpsútsendingu og uppskar hneykslan margra. Hún sýndi þá fyrirhyggju og smekkvísi að hylja eigin geirvörtu með dúlludúski að hætti súludansmeyja. Ég ætla rétt að vona að Berlusconi hafi ekki útvegað einn slíkan til að skemma málverkið eftir snillinginn Tiepolo frá 18. öld. Uppátæki Janet Jackson var hvorki frumlegt né nýtt af nálinni því listmálarar hafa öldum saman berað annað brjóstið á kvenmyndum sínum og það án nokkurs tepruskapar eins og poppstjarnan. Berlusconi er kannski ágætt dæmi um þann sem sér ekki bjálkann í eigin auga.

Í listasafni VatikansinsUm tilslakanir Vatikansins samkvæmt fréttinni skal ég ekki segja. Myndina til vinstri tók ég í listasafni Vatikansins. Það er hægt að ritskoða list með ýmsu öðru móti en að breyta henni, t.d. með því að sýna hana ekki eða kaupa ekki. Í listasafni Vatikansins er gríðarlegur fjöldi listaverka og hrein unun að ganga þar um. Ég hef aldrei séð slíkan fjölda fólks samankominn á listasafni nema við opnun sýninga. Mesta svigrúmið til að njóta lista þar var í safni nútímaverkanna enda strunsuðu flestir þar framhjá. Því miður eru þau verk ekki á vefsíðu Vatikansafnsins. Mörg hinna nýrri verka eru mjög grípandi. Því miður var ég slíkur asni að spara megabætin á myndavélinni minni þangað til ég kæmi í kapellu Michaelangelo svo ég á afar fáar myndir úr þessari álmu safnsins. Það er hægt að skoða verk meistarans miklu betur í bókum og á netinu en það er eins og maður hafi dulda þörf fyrir að eiga fingrafarið sitt í heimssögunni á stafrænu formi. Svo mátti hvort eð er ekki taka myndir í kapellunni en þegar til átti að taka. Stóra lexían er að enga stund höfum við í hendi nema núið.


mbl.is Brjóstamál Berlusconis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Góður pistill.

Laufey B Waage, 16.8.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband