12.7.2008 | 10:35
Fata morgana eða Í föt á morgnana
Tildurrófan hún Silvía kenndi mér þennan leik. Mér leiðast fatabúðir en kannski mundi það auðvelda mér leitina að prenta út myndasettið, spranga inn í búð og spyrja hvort eitthvað sé til sem líkist einhverju á myndinni. Ekki að furða að ég saumaði flest allt á mig hér áður fyrr. Núna er það bara vesen. Ef þig langar að prófa þá smelltu bara á myndina. Þó aðeins sé um kvenfatnað að ræða þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að karlar setji saman sitt drag-gervi.
Athugasemdir
Minnir mig á dúkkulísu. Mig vantar aldrei neitt.
Heidi Strand, 12.7.2008 kl. 21:56
Classy!
SM, 13.7.2008 kl. 12:56
Góð hugmynd. Best að klippa út, næst þegar ég sé spennandi flíkur í blaði.
Laufey B Waage, 13.7.2008 kl. 15:42
Svona skemmtilegur dúkkulísuleikur fyrir þá/þær sem fíla þannig.
Baldur Gautur Baldursson, 16.7.2008 kl. 16:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.