24.3.2008 | 13:45
Í stíl
Þegar ég segist vera að stinga teppi er það þá þessi ímynd sem þið sjáið í hugskoti ykkar?
Aðferðin sem ég nota er barnaleikur. Krefst reyndar töluverðrar æfingar. Viðmiðið er 100 fermetrar af stungu til að teljast vera orðinn góður. Varlega áætlað er talað um 1000 fermetra til að teljast mjög góður. Þess wegna á maður að byrja snemma. Ég lifi í voninni.
Í samanburði við mig er þessi orðin úberflínk.
Athugasemdir
Úberflink er rétta orðið. Hvernig er þetta hægt.
En Ólöf ég er viss um að þú ferð létt með þetta.
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 24.3.2008 kl. 20:00
Ég myndi þykja ég góð ef ég gæti aðeins brot af þessu. Þetta er eitthvað sem mér hefur aldrei tekist að ná tökum á. Ég segi því eins og Ása Hildur að þú ferð örugglega létt með þetta.
Sigurlaug B. Gröndal, 25.3.2008 kl. 20:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.