7.11.2010 | 12:06
Týnd og tröllum gefin?
Þó lítil hreyfing sé á blogginu hjá mér er engin ládeyða í kringum mig. Ég er komin í leikfélag, hef verið að undirbúa sérstaka messu fyrir næstu helgi, paufast áfram með veggteppið og býr til skartgripi. Svo er það líkamlega aðhlynningin með hreyfingu og útiveru.
Myndin hér til hliðar er af armbandi sem ég bjó til og ætla að þróa áfram eftir kúnstarinnar reglum. Eins og er, er ég með það í þolprófi til að komast að raun um hversu vel það þolir notkun. Þetta er æði seinleg vinna, 5 tíma verk þegar frá eru taldar tilraunir og endurtekningar á verki sem tókst ekki nógu vel.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.