Möffins með hvítu súkkulaði og möndlum

Áður en þessi uppskrift að gómsætum möffins hverfur í gleymskunnar dá innan í kokkabókahillunni minni ætla ég að setja hana hér inn í færslu í von um að leitarforrit netsins hjálpi mér að finna hana í einu vetfangi í framtíðinni. Uppskriftin er aðlöguð að uppskrift úr "The Australian Woman's Weekly Cookbooks: Muffins, Scones and Bread" með því sem til var í eldhússkápunum.

2 bollar (300 gr) hveiti Möffins með hvítu súkkulaði og möndlum
2 tsk lyftiduft
2/3 bolli (150 gr) sykur
1/2 bolli (100 gr) hvítt súkkulaði, saxað
1/2 bolli (75 gr) möndluflögur
60 gr smjör, brætt
3/4 bolli (180 ml) mjólk
1 egg, léttþeytt

 

Þurrefni sigtuð saman í skál. Öðrum efnum hrært saman við. Skipt í möffinsmót. Bakað við 175°C í 25 mínútur. Passar í 6 stórar (3/4 bolla mót) möffins eða 12 minni.

Upprunalega uppskriftin tilgreinir 140 grömm af súkkulaði og notar ristaðar makadamíuhnetur en ekki möndlur. Mér finnst upplagt að nota það sem eftir er af möndlupokanum til að strá ofan á kökurnar fyrir bakstur eða bara bæta því við og hafa þéttara möndlubragð.

 


Útskriftarveisla á afmælisdegi - framtíðarsýn

Fjölskyldumynd Afmælis- og útskriftarveisla var haldin þann 21. júlí sl. Útskriftin var 10. maí sl. Þá útskrifaðist ég með akademíska meistaragráðu í guðfræði frá Wesley Theological Seminary í Washington DC í Bandaríkjunum. Gráðan heitir Master of Theological Studies (MTS) og er fullnuð með lokaritgerð eftir tveggja ára nám. Áhersla mín í náminu var á guðfræði og listir. Í meistararitgerðinni tengdi ég saman listsköpun og sálgæslu á hagnýtan hátt í kjölfar vettvangsrannsóknar. Heiti ritgerðarinnar er "Face Value: Self-portraits as World View in Pastoral Care."

Á námstímanum lauk ég einnig fyrsta stigi í verklegu námi í sálgæslu á sjúkrahúsi frá National Institutes of Health Clinical Center. Það er réttindanám, vottað af Association of Clinical Pastoral Education. Námið er ekki til hér á landi en síðast þegar ég vissi hafði Landspítalinn þær kröfur að starfsmenn sálgæsluteymis sjúkrahússins hefðu lokið því

Undanfarin tvö ár eru búin að vera mikið ævintýri og upplýsandi á margan hátt sem um leið gerir kröfur til endurskoðunar og endurmats. Ég er ánægð með námið, sérstaklega vegna þess að þar buðust mér aðrar áherslur í vali, nálgun og úrvinnslu viðfangsefna en tíðkast hér á landi. Ég mundi segja að meistaranámið mitt hafi höfðað til fjölgreindar og veitt tækifæri til hagnýtrar útfærslu viðfangsefna.

Með silfurbryddingu - Ólöf I. Davíðsdóttir Ég er eðlilega mikið spurð hvað ég ætli svo að gera við þetta allt saman. Það er nú svo um guðfræðimenntað fólk að vilji og veruleiki fara ekki alltaf saman þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Þá reynir á fólk að finna sér vettvang sem nærir á einhvern hátt þá köllun sem knúði það til dáða, oft á allt öðrum vettvangi en það hafði kannski upphaflega stefnt á. Löngun mín liggur til þess að sinna hópastarfi fullorðins fólks sem fléttar saman fullorðinsfræðslu, skapandi virkni og sálgæslu til eflingar mennskunnar í viðfangsefnum dagslegs líf og lifandi rækt við andlegt líf. Þetta hljómar kannski eins og lýsing á blöðru. En þegar glöggt er skoðað er sú lýsing ekki fjarri sanni. Blaðran er tákn þess tilefnis sem blæs hana upp. Það lekur svo úr henni eftir því sem líður á og við leggjum hana frá okkur þegar hlutverki hennar er lokið. Þannig lít ég á andlegt starf. Það á ekki að steypa upp staðnaða skúlptúra, verkefni sem engan endi taka og halda fólki föstu í persónulegri eða praktískri merkingu. Fólk er fljót sem flæðir með hjartslætti lífsins. Viðfangsefni þess breytast og stundum þarf að fletta við síðu. Á vettvangi kirkjunnar þarf að vera sveigjanleiki til að þróa og þroska starf með fullorðnu fólki sem kemur og fer eins og aðstæður þess leyfa eða krefjast.

Mig langar að vinna með fólki í slíkum aðstæðum, hlæja með því og gráta eins og við á og finna saman leiðir til verðugs lífs sem er þrungið merkingu í samhljómi tilverunnar. Þar gegnir skapandi virkni mikilvægu hlutverki því hún nær að nálgast viðfangsefnin með líkingamáli sem oft nær betur að tjá og túlka reynslu okkar og úrvinnslu en orðin ein. Skapandi virkni tengir fólk saman í samfélagi til áhrifa í eigin lífi og hefur burði til að hafa áhrif út fyrir hópinn, jafnvel út í þjóðfélagið. Þetta er einnig erindi kirkjunnar því guð sem sendir hana á erindi við manneskjur.


Mannalæti - veppteppi

Ólöf I. Davíðsdóttir - Mannalæti

Hér er nýjasta veggteppið mitt, "Mannalæti." Það er 74x85cm að stærð, saumað saman úr bútum og einnig með applikeringu. Síðan stakk ég það fríhendis í saumavélinni. Bryddingin er saumuð niður bæði í vél og í höndunum.

Inntak verksins tengist frásögnum Gamla testamentisins af forsjá og nægjusemi. Þetta eru  sögurnar af brauðinu frá himnum, manna (2Mósebók 16). Um svipað leiti og ég fór að vinna þetta teppi, dembdust yfir okkur fréttir að málshöfðunum vegna svika, svika sem knúin voru af ágirnd og hroka. Pörupiltarnir kepptust hver um annan þveran að bera upp ámátlegar sjálfsréttlætingar í fjölmiðlumog kölluðu það afsakanir á skipbrotinu sem þeir höfðu lent í. Þessar óskyldu sögur runnu saman í þrunginni merkingu.

Það er nú aldeilis búið að taka tímann sinn að sauma þetta stykki þó ekki sé það stórt. Ég sneið og saumaði saman bútana í apríl og byrjaði að stinga teppið fyrir tveimur mánuðum. Stungunni hefði ég átt að geta lokið á einni dagstund. Ég vildi að afköstin gætu verið meiri en sé ekki fram á að það breytist í bráð. Það bíða svo mörg spennandi verkefni eftir því að komast af pappírsstigi hönnunar yfir í tauið. Á vorönninni hannaði ég nokkur altarisklæði í meistaranáminu í kúrsi sem ég tók við Wesley um textaraðir Þjóðkirkjunnar frá föstu til uppstigningardags. Það verður að bíða betri tíma og potast kannski áfram, einn bút í senn.


Ferð að Gígjökli

Unglingurinn og ég fórum inn að Gígjökli í síðustu viku. Við vorum svo heppin að komast þangað áður en svæðinu var lokað vegna flóðahættu ofan úr vatnslóni sem myndast hefur uppi á jöklinum. Landssvæðið allt er tilkomumikil sjón, þakið öskulagi eins og í framúrstefnulegri skáldsögu. Meðfylgjandi myndir sýna í raun ekki hvernig landið kom okkur fyrir sjónir. Áhrifin skila sér ekki til fulls á myndum. Vegna sólskinsins er lýsingin á mörgum myndanna ekki góð enda myndavélin ekkert til að monta sig af.

Gígjökull 11.6.2010

Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010 Gígjökull 11.6.2010


Öllu gamni fylgir nokkur alvara (eða Besti flokkurinn hvað?)

Jester Card frá Every Stock Photo Það hefur þótt til mannkosta að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega og geta gert góðlátlegt grín að sjálfum sér. Það þykir einnig háttvísi að vera fyndinn á eigin kostnað en ekki annarra. Við Íslendingar erum þeim eiginleika gædd að geta gert grín að okkur sem þjóð. Við verðum ekki einu sinni hörundsár þegar erlendar þjóðir gera grín að okkur. Við brosum góðlátlega því okkur finnst það krúttlegt. Um leið verðum við upp með okkur vegna þess að eftir okkur var tekið. Við erum skemmtilega hégómleg. Sumir telja það stafa af minnimáttarkennd og þjóðrembu. Við tökum spaugið ekki nærri okkur því við tökum ádeiluna ekki til okkar.

En við, sem þjóð, eigum til að taka gagnrýni sem sett er fram af fullri alvöru með sama hætti. Við tökum gagnrýni ekki til okkar heldur. Við getum ekki tekið okkur alvarlega því við erum hégómleg. Gagnrýnisraddir eru gjarnan beittar þöggun. Ýmist er gert lítið úr þeim sem gagnrýnir,  hæfni hans og þekkingu, hann sakaður um óháttvísi eða beitur háði á móti og jafnvel afskrifaður sem kjánalegur. Fræg að endemum eru nýfallin ummæli stjórnmálamanns um að skýrsla rannsóknarnefndar muni þvælast tímabundið fyrir okkur. Í fréttum í dag kvartaði forsætisráðherra undan því að þingmaður hefði ekki haldið gagnrýni sinni innanhúss því mikilvægt væri að stjórnin birtist út á við sem alsæl, samhent fjölskylda. Veruleikinn virðist aukaatriði. Það skiptir mestu að koma vel fyrir. Gagnrýnandinn var vændur um óháttvísi til að drepa málefninu á dreif. Ráðamenn þessa lands virðast ekki deila þeirri afstöðu með mér að málefnaleg gagnrýni sem tekin er upp af alvöru fyrir opnum tjöldum og leiðir til endurskoðunar og jafnvel breytinga á framkvæmd eða skoðunum, er ein af forsendum trúverðugleika og trausts í stjórnmálum.

Í þessu ljósi vil ég skoða háðsádeilu Besta flokksins. Það er innistæða fyrir henni. Kannski ekki  gulltryggð upp í topp. En þess hefur heldur ekki þurft hér á landi undanfarin ár. Þau sem ættu að taka gagnrýnina til sín og bregðast við með uppbyggilegum hætti vilja þagga hana niður með því að afskrifa hana sem fíflalæti. Hégómleikinn er auðmýktinni yfirsterkari. Um leið gleymist að öllu gamni fylgir nokkur alvara. Ég tel Besta flokknum vera fullkomin alvara með háðsádeilu sinni. Ég ætla ekki að leggja mat á alvöru hans með framboðinu. Þar verða verkin að sýna merkin. Þess hefur þó heldur ekki þurft hér á landi undanfarin ár.


Eftirköst fræðanna

Ég álpaðist upp í Háskóla að hlusta á heimsfrægan kvenguðfræðing, dr. Elisabeth Schüssler Fiorenza, í gær. Þar sat ég eins og spýtukall á trébekk í klukkutíma og finn enn fyrir því. Ég verð að gangast við því að ég veit næstum ekkert hvað hún sagði vegna blöndu af framburði og framsagnarmáta ásamt afleitum hljómburði í Háskólakapellunni. Það eina sem ég náði með vissu var orðið "emancipation" aftur og aftur og að Jesús  vígði ekki fólk. Ég skildi ekki einu sinni orðið "emancipation "og varð að fletta því upp þegar ég kom heim. Ég hélt kannski að ég mundi þá muna merkingu þess það sem eftir er eftir alla fyrirhöfnina. En svo er ekki því ég varð að fletta því aftur upp til að skrifa hér að það þýðir lausn eða frelsi. Þetta er skiljanlega mjög neyðarlegt fyrir manneskju sem er nýútskrifuð með meistaragráðu eftir nám í enskumælandi landi. Nú megið þið ekki misskilja mig og halda að ég sé vanþakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að hlusta á fræðikonuna í eigin persónu. Slíkt er alltaf sterkt innlegg í fræðimennsku. Ætli ég sé ekki bara svolítið svekkt.

Það liggur mikil vinna á bak við ævistarf fólks á borð við Elisabeth Schüssler Fiorenza. Ég hef lesið efni frá henni í námi mínu og það var gott. Það þarf skarpan huga og umfram allt leikgleði til að velta við steinum, jafnvel sömu steinunum aftur og aftur, og hlaða þeim í nýjar vörður sem hafa merkingu og vægi á vegferð okkar.

Ég set hér aftur nokkrar myndir af bók sem ég gerði í meistaranáminu sem andóf við þeim miklu setum sem fræðunum fylgja og tilhneigingu guðfræðinnar til að líta framhjá visku líkamans og reynslunnar af lífi í líkama. "Colophon" textinn er fyrir neðan myndirnar. Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir Seat of Wisdom - Ólöf I. Davíðsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

students sit a lot and learn a lot in seminary. while there i sat in many chairs and suffered many hours from posing my body at a 90°angle. i felt that body and theology were not in agreement. that’s nothing new. issues of the body have long been issues of theology. now it’s as if there has been a shift from disciplining the body to ignoring it’s wisdom. the term “seat of wisdom” is an old tradition in christian art for virgin mary with baby jesus on her lap. the word “body” is also a theological term for the context we live in with others together with god. there are no bodies in the photographs, just a jumble of chairs at wesley theological seminary. that can mean a lot of things.

 

to start with - imagine what it’s like to sit in them.

then think about your body.

what does it mean to be a body? there’s wisdom in that.

 

title: seat of wisdom

author: ólöf i. davíðsdóttir

paper: southworth linen paper

font: perpetua

font colour: brown

printing: epson inkjet

binding: accordion

cover: paper, cardboard

place: washington dc, usa

time: 2009

copy: 1/1

 

photographs taken at:

    wesley theological seminary,

    washington dc, usa

camera: sony cyber-shot 4.1

image software:
    microsoft office picture manager

    gimp

number of images: 45

title image from cover of

    “seat of wisdom”

    by louis bouyer, 1962

 

 


Stunguvinna

Mannalæti 1 Veggteppið potast áfram. Í gær byrjaði ég að stinga það eftir miklar vangaveltur um mynstur. Framan af degi rissaði ég á pappír þær saumlínur sem mér datt í hug og sú sem varð ofan á veldur svima, bókstaflega, því stungan skiptir sífellt um stefnu. Ég þarf þó að æfa það form betur áður en ég sting það í teppið. En ég fann annað stunguform til að nota með, æfði mig á því og stakk svo í teppið. Það kallast páskaegg og er auðvelt í vinnslu. Þetta er hringur með línu þvert yfir. Ég mæli með því að maður æfi sig með tvinna sem er ekki samlitur efninu svo maður sjái vel til verka.

Einu sinni sem oftar vakti þessi stunguvinna upp löngunina til að eignast beinsaumsvél með stóru koki (breidd opsins). Það er bara ekki eðlilegt hvað þær eru dýrar. Það eru til vélar sem eru sérstaklega hannað fyrir svona vélstungu, kallaðar long-arm. Þær kosta yfirleitt ekki undir hálfri milljón. Mig vantar nú ekki endilega slíka maskínu. Það eru til lágstemmdari vélar (og með minna op) en þær kosta samt sitt. Ein slík frá Pfaff sem seld er hér á landi kostar 190 þúsund. Ég veit af öðru merki sem ég ætla að skoða fljótlega, Juki vél. Þetta er ekki bara pjatt. Þessar flóknu, tölvustýrðu heimilisvélar, eins og ég á, eru viðkvæmar fyrir því að mikið sé stungið á þær fríhendis. Það er alltaf hætt við því að tímagangurinn í þeim ruglist þegar efnið er hreyft fríhendis undir fætinum og það er dýrt að fara með þær á verkstæði þegar það gerist til að láta endurstilla þær. Á meðan læt ég mig dreyma um stóra vinninginn. Fyrst þarf að borga námslánin.

Stunguna á myndinni fyrir ofan fann ég á bloggsíðu þar sem ritari ætlar sér að setja inn 365 stungumynstur og lýsingu á aðferð með myndbandi á jafn mörgum dögum. Myndbandið er hér:


Mannalæti

N Mannalæti 1 ú er meistaranáminu lokið og ekki annað eftir en að bíða eftir skírteininu. Útskriftin er á mánudaginn kemur en ég fer ekki út til Bandaríkjanna til að vera viðstödd. Það er hægt að gera margt fleira merkilegt fyrir 3000 dollara. Í staðinn verður til terta heima hjá mér á mánudaginn. Að sjálfsögðu var sest við sauma í beinu framhaldi enda ekkert annað sem keppir um krafta mína og athygli núna. Það er mikill munur og mér líkar það vel.

Ég er að sauma veggteppi, hið þriðja eftir sömu hugmyndinni. Það er óvenjulegt þegar ég á í hlut að vinna áfram með sama mótívið. Slíkt hefur ekki höfðað til mín. Einu sinni er þó allt fyrst. Teppin eru sett saman úr eins konar skífum sem eru saumaðar úr nokkrum efnisbútum og er allt skorið fríhendis jafnóðum og saumað er. Tilvísun formanna er í manna, morgunverð Ísraelsmanna í eyðimörkinni. Hér eru nokkrar myndir frá vinnunni. Þetta byrjaði sem leikur að formum fyrir þremur árum. Það á að vera áfram leikur en nú þegar maður er orðinn svona lærður er ekki hægt að segjast bara vera að leika sér svo nú þarf að finna gáfulega skýringu á atferlinu. 

Mannalæti 1 Mannalæti 1 Mannalæti 1


Öskusólarlag

Þær voru nokkrar myndanna sem ég tók vestur yfir Laugardalinn í gærkvöldi þar sem sólin settist í öskumettuðu andrúmsloftinu. Myndirnar eru teknar á venjulega heimilisvél. Ég hefði svo gjarnan viljað eiga vandaðra tæki við þessar aðstæður.

Öskusólarlag 1 - Ólöf I. Davíðsdóttir

Öskusólarlag 3 - Ólöf I. Davíðsdóttir

Öskusólarlag 2 - Ólöf I. Davíðsdóttir

Öskusólarlag 4 - Ólöf I. Davíðsdóttir

 


mbl.is Litskrúðugt sólarlag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biblíuleg sagnalist á íslensku - myndband

Framundan er upprisuhátíð páskanna. Af því tilefni set ég inn myndband af æfingu á flutningi guðspjalls páskadags að hætti biblíulegrar sagnalistar. Þetta er aðferð sem ég lærði í meistaranáminu út i Bandaríkjunum. Þetta verður sannkölluð Íslandsfrumsýning því ég hef ekki gert þetta hér heima áður.

 


 

Að hættri enskra kallast þetta "biblical storytelling" og byggir á frásagnarlist munnlegrar geymdar. Ég fann að ég bjó að ríkulegum heimanmundi í íslenskum þjóðsögum meðan ég var að læra þetta. Enda valdi ég mér íslenska þjóðsögu til að flytja á námskeiðinu. Ég bið lesandann að athuga að vegna birtuskilyrða varð ég að snúa baki í salinn fyrir myndatökuna. Þegar stóra stundin rennur upp verða kirkjugestir ekki fyrir aftan mig. Það er svona með tæknina. Hún er skilyrðum háð. Það sannaðist því hér hversu sveigjanlegur þessi jarðneski tjáningarmáti líkamans og raddarinnar er.

Ýmsar bjargir eru aðgengilegar á netinu til að kynna sér þessa aðferð og læra að nota hana. Þó er gott að nema hana í góðum hóp enda segir maður sjaldnast sjálfum sér sögur. Hér eru nokkrir tenglar:

Network of Biblical Storytellers

Calvin Institute of Christian Worship

Bible Storytelling

Guðsþjónustan er í Guðríðarkirkju, Grafarholti, klukkan ellefu á páskadag. Þetta verður fjölskylduhátíðarguðsþjónusta þar sem börnin verða leyst út með glaðningi er hæfir tilefni dagsins.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband