Vorblćr í fataskápnum

Kjóll - sniđ: Onion 2035

Ţessi kjóll var ađ koma undan saumavélinni. Nýlega gekk ég í útlenskan saumaklúbb á Facebook ţar sem međlimir sauma kjóla úr teygjanlegum efnum. Ţađan hef ég fengiđ mikinn innblástur, sérstaklega vegna ţess ađ efnisval er miklu meira í ćtt viđ minn smekk en svart-og-grátt sem ríkir ár eftir ár yfir íslenski fatatísku, vetur jafnt sem sumar.

Onion2035Sniđiđ er Onion 2035. Ég hef saumađ annan kjól áđur eftir ţví en hann varđ allur eitthvađ svo stór og teygđur. Svo ég ađlagađi sniđiđ betur. En nú lenti ég í ţví ađ ţessi nýjasti kjóll er eiginlega 5 kílóum of lítill. Eftir stutta umhugsun áttađi ég mig á ţví ađ teygjueiginleikar efnanna voru mjög ólíkir. Sá fyrri var úr viskósjersey sem er mjög teygjanlegt og ţungt. Ţess vegna varđ hann allur svona laus á mér ţó ekki vćri hann of stór. Ţessi nýi er úr ţykkara bómullarjersey sem er áprentađ og ţví stífara fyrir vikiđ. Hann gefur ţví minna eftir og heldur betur formi. Mér sýnist ég ţví ţurfa sniđ í tveimur stćrđum eftir ţví hvernig jersey efni ég nota.

En ég gerđi fleira fyrir kjól númer tvö. Mér fannst hálsmáliđ of sítt og vítt svo ég grynnkađi ţađ. Einnig var axlarsaumurinn of langur út á öxlina. Ég fćrđi ţví axlirnar til, mjókkađi ţćr um tvo sentimetra viđ ermasauminn og bćtti ţessum tveimur sentimetrum viđ axlarsauminn í hálsmálinu. Ermasaumurinn situr ţví hćrra á öxlinni og hlýrinn á brjóstahöldunum hćttir ađ gćgjast fram fyrir.

Annađ gerđi ég líka viđ sniđiđ. Ég gerđi ráđ fyrir bakfettunni svo kjólfaldurinn kippist ekki upp ađ aftan og kjóllinn kiprast ekki heldur í fellingar yfir mittiđ á bakinu. Ţessi breyting fellst í ţví ađ stytta baksauminn eftir kúnstarinnar reglum og síkka faldinn ađ hluta. Ţađ er ekki erfitt, mađur ţarf bara ađ kunna ţađ.

Kjóll - sniđ: Onion 2035

Erma- og kjólfaldar eru stungnir međ tvíburanál í venjulegri saumavél en ađ öđru leyti er kjóllinn saumađur saman í overlockvél. Hálsmáliđ er frágengiđ međ teygjuskábandi.

Ţetta er fyrst flíkin sem ég sauma úr digital áprentuđu jersey. Ég hef lćrt af ţví. Mér sýnist ađ mér sé óhćtt ađ sníđa slíka flík eftir réttri stćrđ en viskósjersey hins vegar númeri minni. Nú er bara ađ vinda sér í ađ sauma nćsta kjól međ ţennan reynslubanka í farteskinu.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband